Auglýsing

Könnun

Scrambled egs máliđ?

Long time no see!

11. ágúst 2008 klukkan 23:48
Já, heldur betur langt síðan síðast, en ég hef engu gleymt og byrja bloggið á að afsaka hvað er langt síðan ég bloggaði eins og í öll hin skiptin.

Lífið gengur! Ekki meira um það að segja, en ég ákvað að framlengja dvölina mína í óbyggðum í Húnaflóanum þangað til árið 2009 og skellur á! Nýtt ár, nýtt upphaf, já takk!

Ég skellti mér í hörkuútileigu í sumar. Ég, Katrín,  Brynja, Siggi og Sigurgeir fórum og gistum í Hallormsstað og skemmtum okkur yfir helgi, án efa toppur sumarsins. Lenti reyndar í að tjóna Skoda ljóta minn en ekkert alvarlegt bara beyglaður stuðari.

Úff, ég er rusty á þessu sviði, veit engan vegin um hvað ég á að tala.
Öööö, ég var að koma úr bogaskiptum, þannig núna eru það 8 verkjatöflur á dag og súpur inná milli í þrjá daga.
Mig langar í nýjan síma, en ég tími ekki að kaupa mér nýjan síma! Vonum bara að jólasveinarnir sjái hvað ég er búinn að vera góður í ár.

Æji, vá, skal reyna gera uppkast af bloggi í vinnunni og skella því hér inn, ég er bara engan vegin að geta þetta!

Au revoir.

wóóóÓóÓ!

18. apríl 2008 klukkan 14:49
Ómg! Eruði búin að sjá myndbandið við This Is  My Life! Váá, fæ gæsahúð þegar ég sé það! Elska það!
Ég ætla ekki að vera ofur bjartsýnn en ég er samt bjartsýnn og segi að við verðum í topp 5!

Það er svo gaman, það er geggjað veður og ég er inni að blogga! Það er afþví að það nennir enginn á rúntinn með mér! Alma að þykjast vera veik og Helena svarar mér ekki!  Jáhá! Pottþétt að ég svara henni ekki næst þegar hún hringir!

Pabbi kom í land í gær! Var svo gott að sofa í alla nótt með lokaða hurð þannig að Tryggur minn varð bara að vekja pabba ekki mig! Yndislegt að vakna ekki að hleypa þessari elsku út að pissa!

Brá pínu í gær en hann pabbi bað mig! um hjálp við að setja lakið á rúmið! Gat þetta ekki einn kallinn, hann heldur því reyndar fram að þetta sé tveggja manna verk!

Spangirnar venjast bara ótrúlega vel, er meira en að segja farinn að gera brosað! Klapp fyrir mér!

Æji, nenni ekki meira! Blee

Ţráhyggja

26. mars 2008 klukkan 21:46
Sveimér, parketið hérna er það eina sem ég hugsa um allann daginn! Skúra svona næstum annanhvern dag, samt eru alltaf tuskurákir, annars er ég kominn með ráð við því frá Dagbjörtu og Katrínu. Þannig að ég skúra að ég held á morgun, ef ég hef tíma en ef ég hef ekki tíma get ekki skúrað fyrr en á þriðjudaginn! Nei, nei, ég finn tíma fyrir þetta um helgina. Svo er það annað, ég fæ magasár við að hugsa um það, blessaður bíllinn. Gosh! Horfi alltaf í hina áttina þegar ég labba hjá honum til að forðast tjöruna!

Jæja, Martha Stewart kveeður, Jóhann er tekinn við!

Páskarnir voru æði! Allir heima og allt bara æði. Skellti mér á eitt ball í Kántrýbænum... það var ágætt, samt er sumt fólk svo skrítið en þökk sé lögreglunni þá lætur það mig í friði! :P

Æji, nenni ekki meira, ætla að setja í vel eða eitthvað svo mér leiðist ekki! Bleeee

Skrítnaskrítna!

10. mars 2008 klukkan 13:30
Lífið er skrítið! Það er allt búið að vera svo sktítið síðan um miðjan febrúar, samt á allt að hætta að vera skrítið í kringum næstu helgi, en þá verður allt miklu skrítnara! Ég er samasem að fara að búa einn,  í 180 fm einbýlishúsi með hund! Ég lægst ekki á garðinn það sem hann er lægstur! Efast samt um að það verði erfitt að halda þessu hreinu hérna miðað við allt dótið sem verður hér!

Já, ég bý á Skagaströnd sem er eitt mesta slúður bæli landsins, ekki það að ég slúðri ekki, mér finnst alveg gaman að heyra slúður, een ég er samt búinn að vera að hugsa minn gang í þeim efnum og er búinn að komast aðþví að ég ætla að hætta að slúðra um eitthvað sem ég hef ekki hundsvit á! Ótrúleg erfitt að  heyra aðrar útgáfur af vandamálum manns, en ég veit hvað er rétt og fólkið sem þekkir mig og það skiptir máli!

Síðan ósköpin dundu yfir hef ég komist aðþví hvað ég á ótrúlega góða að! Elska ykkur!

Já, skiptum um gír!

Ég skellt mér á kennaradjamm þar sem ég er skólaliði á föstudeginum og það var ótrúlega gaman, skemmti mér alveg konunglega þó það hafi verið svoldið erfitt að venjast gömlu kennurunnum sínu svona fyrst. Fórum í einhverja aðra útgáfu af Party&Co ooog auðvitað vann liði mitt, það hafði samt ekkert með það að gera að stigavörðurinn var með mér í liði! Svo á laugardaginn fór ég í Kántrý í góðra manna hópi, oog loksins fékk ég kántrýmenninguna beint í æð ooog er ennþá í hláturskasti yfir þessu bittum.

Tölvan hrundi í síðustu viku, en pabbi gat lagað hana, en samt fór allt útaf henni, þannig ég er 24/7 að dl-a öllum lögunum sem mig vantar! Hver á This is my life? Er viss um að þetta er eitthvað persónulegt útí mig að enginn eigi það.

Nenni ekki meira, ætla að halda áfram að fylgjast með Rúv bílnum! ÓMG Skagaströnd í fréttunum í kvöld!

Síja!

Norđaustan 16 - 24 metrar á sekúndu.

25. febrúar 2008 klukkan 23:41

Nýr bíll! Skoda Octavia árgerð 2005, sjálfskiptur! Endalaust stolt! Svooo er ég orðinn 18.  tvö Kántrýbæjardjömm afstaðin, gaman það. Svo fékk ég tótallý, flottustu afmælisfgjafir í heimi! :D

Leiðindaveður, ekkert nýtt samt. Var búinn að ákveða að labba úr vinnunni en ákvað að reyna á Skoda, og viti menn, ég komst alveg að húsinu við hliðiná mínu! Þar lagði ég honum þar sem einn jeppi var fastur oog skaflinn var hærri en hann, þannig Skodinn hefur það fínt hjá Höfðatúni!

Ég er byrjaður að krafti aftur í ræktinni, meira en að segja búinn að skipta um 'mitt' hlaupabretti þar sem gamla 'mitt' nelgdi niður þegar ég var að hlaupa á hraða 9. Alveg að drepast í hendinni eftir ágæta skellinn á brettið!

Er alveg endalaust ánægður með Eurovision lagið! Love it! Var alveg að fara að byrja að grafa holuna sem ég ætlaði að skríða ofan í ef Hey, hey, hey, we say ho, ho, ho hefði unnið!

Mig  langar allt í einu svo mikið á skíði, er alveg að missa mig, einhver game?

Ég er svo hugsi eitthvað, pæli óvenjumikið í hlutunum, samt aðalega lagatextum og málsháttum! æji, ég er skrýtinn.

Þeir sletta skyrinu sem eiga það

Hver er sinnar gæfu smiður

Sjaldan fellur eplið langt frá eikinni

                                                        Jóhann - hugsi!

Engin fyrirsögn.

22. janúar 2008 klukkan 16:29
Ég sit hérna niðrí borðstofu, það er fínt, ég sé nákvæmlega allt bæjarlífið, ekki að það sé mikið, alltaf sama fólkið að keyra framhjá. Þannig að mamma má endilega fara oftar, elska þetta að vera hérna einn og geta sitið í borðstofunni í tölvunni. :D

Ég er alveg búinn að vera að missa mig í persónuleikaprófum, fæ alltaf svona ca sama svarið, allavegana er alltaf tekið fram, neatfreak eða organized. Mér finnst það ekki beint eiga við mig, en samt svona smáá.

Ég er alveg að verða 18, það verður gaman, við pabbi búnir að ákveða að fara suður og skoða bíla. Vááá, mig hlakkar til að fá almennilegan bíl, ekki ljótu Pálínu, sem er á einu gulu dekki núna! Arg, já það sprakk, voða skrítið allt saman.

Ég og Rainbow sameinuðum krafta okkar í gær og ryksuguðum allt húsið, takk fyrir takk, skúraði líka allstaðar þar sem það er parket! Það voru gestir hérna í viku, ein kona og tveir hundar, hundarnir tveir voru mjög góðir í að míga og skíta um allt. Ég vaknaði alveg úber hress einn morgunun, að gera mig til fyrir ræktina og ég steig í kúk! Steig líka í 2 pissupolla! ógéðslegamikiðgaman, en já svo í gær var ég að byrja að skúra þegar ég  rek augun á 3 þornaða hlandpolla, bakvið sófan, hliðarborðinu og undir borðinu inni sjónvarpsholi og eins og ég sagði skúraði ég þetta allt þannig nú er allt hreint, ekki kúkað og migið!

Hey, nýja hringingin mín er best, hér kemur sýnishorn

It must have been love, but it's over now
It must have been good, but i lost it somehow
It must have been love, but it's over now

Ég er að drepast úr leiðindum hérna á Skagaströnd, vantar eitthvað skemmtó að gera, er farinn að vera vikulegur gestur niðrá Vivu bara að gera eitthvað því mér leiðist, ætti bara að fara rífa mömmu út að labba með mér, stofna spilaklúbb eða bara fá fyrirframgreitt vísakort og verslað á netinu þá leiðist mér ekki! :D

Allir sem lesa þetta er velkomnir í heimsókn til mín, ég býð uppá Pepsi Max og ostasalat sem ég bjó til áðan, þannig ég ætla bara að segja bless!

Ţeir sletta skyrinu sem eiga ţađ!

06. janúar 2008 klukkan 14:58
Hmm, já! Mér leiðist, fer ekki að vinna fyrr en 4 þannig að ég ákvað bara að skella í eitt skemmtilegt blogg!

Byrjum á að nefna að ég hef ekki svo mikið sem smakkað nammi síðan 31. des! Klapp fyrir mér.

Allt fór á kaf í snjó hér um daginn, festi mig 10 sinnum takk fyrir, þurfti að draga mig 9 sinnum! Not my finest. Vaknaði svo áðan og það er kominn snjór aftur! Hata að skafa af bílnum, gjörsamlega það leiðinlegasta sem ég geri.

Árgangur '90 var með smá hitting 21. des að mig minni, vá það var best, endalaust gaman.

Ég er ekki að geta þetta blogg, finnst ég alltaf hafa alveg helling til þess að tjá mig um en svo leið og ég byrja þá bara fer allt!

Ég ætla samt að reyna.

Eftir, 1 mánuð og 1 dag verð ég 18 ára! Sjet! Sem þýðir að mamma má henda mér út. Gat nú ekki heyrt annað en að það væri í planinu um daginn, en samt, ég var eitthvað lengi í sturtu þá, hún verður búinn að gleyma því eftir mánuð.

Svooo þarsem ég er að verða 18 ára, má ég kjósa! Úff, tvær forsetakosningar á einu ári. Þetta verður gaman, þarf samt að byrja á að setja mig á kjörskrá í sendiráðinu, hvernig sem ég fer að því.
Ég varð pínu fúll í gær þegar ég sá að Barrack Obama vann Iowa! Greyið Hillary mín, var með þriðju mestu atkvæðin, John Edwards meira segja var með meira en hún, hvað er að ské!
Ég má víst líka kjósa forseta Íslands, það verður gaman að sjá Ásþór Magnússon tapa þessu einu sinni enn!

Hmm.. ég er orðinn húkt á Britney Spears fréttum! Nenni ekki meira, bleeeeee.

Fiskisúpuslabb!

14. desember 2007 klukkan 21:18
Jáá, sæll! Hvað segiru? Jámm, ég segi fínt!

Skrapp suður. Skrapp kannski ekki beint, fór suður, höfum það þannig. Núna sit ég hérna hjá henni Pálu minni og á að vera að passa, en þar sem hún Rakel er hérna þá þarf ég ekkert að gera, ákvað þess vegna að blogga. Jólagjafirnar eru allar komnar í poka og í skottið á Pálínu, hvílíkur léttir að losna við það! Samt náði ég ekkert að versla þessar gjafir fyrr en í gær og kláraði það á tveim tímum, klapp fyrir mér. Allir hinir dagarnir hafa farið í stúss í kringum eitt andskotans borð sem er 2,80 á lengd og svona rétt tæp 18 tonn að þyngd, og viti menn, Pálína bar þetta með sóma og ég ók líka með sóma með þetta ferlíki aftur í.

Sótti um skóla í einu stundarbrjálæði á þriðjudaginn, en svo þegar ég kom aftur til manna þá áttaði ég mig á því að ég þarf að segja upp vinnunni og flytja og allt það fyrir 4. jan. Bíðum með það þangað til næsta vetur eins og planið var.

Förum aðeins í 'old news' een, ég er búinn að vera ofboðslega duglegur alveg að pumpa, hlaupa eða eiginlega bara svitna í ræktinni og þegar ég fæ eitthvað nýtt áhugamál, þá náttúrulega geri ég ekkert annað en að sinna því og af krafti. Þannig fór það að ég ofreyndi hnéið mitt, sem lýsti sér þannig að ég tognaði eiginlega, og þurfti að bera bólgueyðandi á það og taka mér tveggjavikna frí en núna er allt batnað og því ætla ég beint í ræktina á mánudaginn.

Já, hef sjaldnast bara bloggað jafn mikið. oooog nú er ég hættur, blee.. slut!

02. desember 2007 klukkan 21:56

iTunes leikur!
settu spilarann á shuffle og skiptu um lag fyrir hverja spurningu!


þetta lag lýsir persónuleika þínum ;
Dancing Queen - Abba! HAHA

þetta lag lýsir útliti þínu ;
Boston - Augustana ?

þetta lag lýsir hvernig þú verður eftir 10 ár ;
Mama! I'm a big girl now - Hairspray! Hahah!

þetta lag lýsir hvað vinum þínum finnst um þig ;
Then you look at me - Celine Dion! Gosh, vona ekki!

þetta lag lýsir hvað foreldrum þínum finnst um þig ;
Aldrei fór ég suður - Bubbi! Plís nei!

þetta lag lýsir hvað þér finnst um vini þína ;
Allt fyrir ástina - Páll Óskar! ?

Þetta lag lýsir hvað þér finnst um þann sem þú ert hrifinn af ;
Quit playing games with my heart - Westlife! Guð, hvað er ég með í iTunes!

þetta lag lýsir því hvað þeim sem þú ert hrifin af finnst um þig ;
Hero - Mariah Carey! HAHAHAHA!

þetta lag lýsir tilfinningunni sem þú finnur fyrir þegar þú sérð þann sem þú hatar mest ;
Free (Jason Nevins Mix) - Ultra Nate!

þetta lag lýsir mottóinu þínu ;
Love Today - Mika! ?

þetta lag lýsir skapinu sem þú ert í ;
It's just porn mom - Juice! Jájá, hví ekki!

þetta lag lýsir persónunni sem þú ert hrifinn af ;
All i want to do is make love to you - Heart!

þetta lag lýsir því hvað fólki finnst um þig þegar það sér þig fyrst ;
Grace Kelly - Mika

þetta lag lýsir framtíðinni þinni ;
Everytime we touch - Cascada

Þetta lag lýsir starfinu sem þú munt vinna við ;
Satisfaction - Benny Benassi

Wierdo!

Jólajóló!

25. nóvember 2007 klukkan 18:50
Bloggblogg, hún Katrín fór í gildruna og dó! Gæti ekki verið ánægðari að losna við kvikindið úr hanskahólfinu! Samt var nú eitthver að reyna að hræða mig með því að segja mér að ef hún hefði verið í meira en 13 daga væru pottþétt ungar þarna, eeen hún var í mesta lagi í 3 daga!

Ég er barasta alveg að detta í jólagírinn! Tók upp smá jóladót í gær og skemmti mér konunglega með Strumpana á fóninum við að koma þessu fyrir!

Síðasti föstudagur var alveg æði! Vaknaði eitthvað ofurpirraður og svo um hádegi þurfti ég að fara með mömmu á Blönduós á sjúkrahús því blessunin fékk einhverja sýkingu og var lögð inn! Eyddi restinni af föstudeginum í að vera pirraður og bitur! Nú er sagan samt önnur!

Setning augnabliksins er "Þa' er svo fínt ef mamma er búin að eiga'nn!" en merkilega kona sagði þessu merkuorð um bílinn minn!

Ég kann ekkert að blogga lengur! Þannig ég er hættur en ég vil komment!

Prófíll

  • Nafn: Jóhann Már Jóhannsson
  • Stađur: Skagaströnd
  • Kyn: kk
  • Atvinna: Barnaból og Söluskálinn.
  • Hjúskaparstađa: Engin.
  • Um mig: Kann ekki.
  • Annađ: Krakkar! Veriđi úti ef ţiđ ćtliđ ekki ađ versla.

Innskráningar kubbur